Sólargeislar Vöruúrval f vefsíðu bannerSólargeislar Vöruúrval f vefsíðu banner

Aðventudagatöl frá MeriMeri

Vöruúrval

Takk fyrir að velja Sólargeisla

Ég óska’ sautjánþúsund sólargeislar, klappi þér á kinn…

Verslunin Sólargeislar var stofnuð af hjónunum Agnesi og Árna eftir að hafa komist í kynni við Connetix segulkubbana í gegnum Instagram leik haustið 2019. Ástralska fyrirtækið sem framleiðir Connetix var þá nýstofnað og nýtti samfélagsmiðla til þess að kynna vöruna sína, meðal annars með alþjóðlegum gjafaleikjum. Agnes, sem var þá þegar dyggur aðdáandi segulkubba, ákvað að taka þátt og vann! Þegar tæplega fjögurra kílóa kassinn komst loks í hendur okkar á Íslandi alla leið frá Ástralíu var ekki aftur snúið: Connetix segulkubbarnir voru einfaldlega á öðrum kalíber.

Að segja að segulkubbar séu frábær barnaleikföng er hreinn og beinn sannleikur, en Connetix segulkubbarnir eru þar öðrum fremri. Það sem Connetix segulkubbarnir hafa framyfir önnur sambærileg leikföng er hversu sterkir seglarnir eru, plastið sem er notað rispast síður og fletirnir sjálfir eru tærari sem gerir samspil ljóss og lita í leik barna svo ótrúlega skemmtilegt.

Um mitt ár 2020 bættu við öðru áströlsku vörumerki, en MierEdu sérhæfir sig í að framleiða leikföng sem stuðla að lærdómi í gegnum leik. MierEdu vörurnar koma í sjálfbærum og umhverfisvænum umbúðum og það verður að segjast að 3D-púslin frá þeim séu eflaust þau flottustu sem til eru. Stærðfræðirútan og segultaflan um líkamann hafa einnig slegið í gegn í grunnskólum landsins.

Fylgdu okkur á Instagram & Facebook

Updating…
  • Engin vara í körfu.